Innflutt hreindýrakjöt

Hafþór Hreiðarsson

Innflutt hreindýrakjöt

Kaupa Í körfu

VINNSLA hófst á föstudag á grænlensku hreindýrakjöti hjá kjötvinnslufyrirtækinu Viðbót ehf. á Húsavík, en landbúnaðarráðuneytið gaf þá út bráðabirgðaleyfi fyrir því að fimm tonn af kjöti yrðu verkuð fyrir innanlandsmarkað. Frystigámar með 32 tonnum af hreindýrakjötinu hafa staðið á hafnarbakkanum á Húsavík í hálfan mánuð þar sem tilskilin leyfi hafa ekki fengist til að vinna kjötið. Á föstudagsmorgun var innsigli hans loksins rofið, að viðstöddum heilbrigðisfulltrúa og lögreglumönnum. Einungis mátti losa það magn sem nemur innanlandskvótanum að þessu sinni, síðan var gámnum lokað aftur og hann innsiglaður að nýju. MYNDATEXTI: Stefán Hrafn Magnússon tv. og Gunnar Óli Hákonarson voru ánægðir þegar þeir fengu loks að losa grænlenskt hreindýrakjöt úr gáminum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar