Þórshamar

Þórshamar

Kaupa Í körfu

ÞÓRSHAMAR var sigursæll á Íslandsmótinu í karate á laugardaginn þegar kappar þess unnu í báðum kvennaflokkum, opnum flokki og liðakeppni karla og kvenna ásamt því að fá flest heildarstig félaga en Fylkir hampaði flestum þessum titlum í fyrra. Það kom fáum á óvart þegar Edda Lúvísa Blöndal sigraði í sínum flokkum tíunda árið í röð en í opnum flokki karla endurheimti Jón Ingi Þorvaldsson titil eftir æsispennandi bardaga. MYNDATEXTI: Sigurlið Þórshamars á Íslandsmótinu í Kumite. Í fremri röð: Jón Ingi Þorvaldsson og Edda Lúvísa Blöndal. Í aftari röð frá vinstri: Margeir Stefánsson, Sólveig Sigurðardóttir, Auður Olga Skúladóttir, Jón Viðar Arnþórsson, Ingibjörg Arnþórsdóttir og Davíð Guðjónsson. mynd kom ekki

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar