Karate

Stefán Stefánsson

Karate

Kaupa Í körfu

Í heimsókn hjá Karatedeild Fylkis. Eins og gera mátti ráð fyrir var mikið fjör á æfingu hjá karatedeild Fylkis þegar rúmlega 40 krakkar á aldrinum 6 til 12 ára tuskuðust, æfðu spörk og högg eða léku sér en þegar þjálfarinn kallaði "Yame", sem þýðir að hætta, stökk allur hópurinnn til, raðaði sér upp og beið eftir fyrirmælum. Það þótti sjálfsagt því agi er undirstaðan í karate. Myndatexti: Það skiptust á skin og skúrir hjá félögunum Elíasi Guðnasyni og Hervari Hlíðdal Þorvaldssyni, sem er 7 ára. Í æfingu þegar kýla á laust í eða í átt að maganum náði Elías ekki alveg að reikna út fjarlægðina. Hervari sárnaði sem von var en öll él birtir upp um síðir, eftir að Jón Hákon Bjarnason þjálfari ræddi við kappann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar