Linda Pétursdóttir

Linda Pétursdóttir

Kaupa Í körfu

Linda Pétursdóttir veitir Hjálparsímanum 1717 liðsinni sitt Mér er sérstakur heiður að því að leggja Rauða krossinum lið með þessum hætti og ég er mjög ánægð með að bókin mín skuli hafa vakið þessi viðbrögð. Ég vil gjarnan hjálpa til við að vekja athygli á Hjálparsíma Rauða krossins, því ég veit af eigin raun hve nauðsynlegt það er að geta rætt um erfiðleikana. Þörfin fyrir Hjálparsímann er því miður mjög mikil og þessi árstími, þegar flestir halda gleðileg jól, getur reynst mörgum mjög erfiður," segir Linda Pétursdóttir. Hún hefur orðið við beiðni Rauða krossins um að kynna Hjálparsímann 1717, en þangað geta allir hringt sem eiga um sárt að binda á einhvern hátt. Auglýsingar, sem vekja athygli á Hjálparsímanum, verða birtar milli jóla og nýárs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar