Ragnhildur Hjaltadóttir Íslandsbanka
Kaupa Í körfu
ÍSLANDSBANKI hefur opnað útibú í Grímsey sem mun jafnframt vera nyrsta bankaútibú á byggðu bóli á Íslandi og það fyrsta sem staðsett er við heimskautsbaug. Pósthúsið í Grímsey veitti til margra ára almenna bankaþjónustu í eynni, en eftir að gírókerfið var tekið í notkun varð erfiðara fyrir íbúa eyjarinnar að ganga frá mánaðarlegum skuldum og ýmiss konar millifærslum, en Íslandspóstur hætti að veita þessa þjónustu. Íslandsbanki keypti í haust vátryggingafélagið Sjóvá-Almennar og var haft samband við Ragnhildi Hjaltadóttur, sem hefur verið umboðsmaður tryggingafélagsins í eynni í nær fimmtán ár, að taka að sér þessa þjónustu fyrir bankann. Ragnhildur opnaði síðan fyrsta útibúið nú á dögunum, á heimili sínu að Gerðubergi. Segir hún að viðskiptavinir geti þar fengið alla sömu þjónustu og hjá bankagjaldkera Íslandsbanka á fastalandinu. Grímseyingar hafa tekið þessari þjónustu fagnandi og hafa viðskiptin verið góð. Segist Ragnhildur því sannarlega líta framtíð bankaútibúsins í nyrstu byggð björtum augum.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir