Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir
Kaupa Í körfu
Valdi iðnaðarverkfræði og fékk draumastarfið Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir er fædd árið 1978. Hún bjó fyrstu árin í Hafnarfirði en flutti svo til Reykjavíkur og gekk í Ísaksskóla. Hún bjó í Álfheimum, var í Langholtsskóla og varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1998. "Sumarið 1998 gaf ég, ásamt öðrum, út blað um ungt fólk í samstarfi við ÍTR, en um haustið fór ég að vinna í Iðnó hjá Leikfélagi Íslands," segir Sigurlína en þann vetur var t.d. Rommí sýnt og Þjónn í súpunni. Vorið 1999 langaði hana til að breyta til og fór með vinkonum sínum í tveggja og hálfs mánaðar ferð til Taílands og Kína. "Það var meiriháttar að vera í Taílandi, en ég fékk menningarsjokk þegar við komum til Kína, því viðbrigðin voru svo mikil, ískalt, fólkið lokaðra og erfitt að skilja og gera sig skiljanlegan," segir hún en bætir við að hún hafi öðlast dýrmæta reynslu í báðum þessum merkilegu löndum. Áður en Sigurlína fór í ferðalagið hafði hún tekið áhugasviðspróf. Hún fékk þó ekki niðurstöðurnar fyrr en hún hafði þegar skráð sig í vélaverkfræði við HÍ. Niðurstaðan úr prófinu var að sá starfsvettvangur sem líklega félli henni best væri: vélaverkfræði. "Ég var eitt misseri í náminu sem skiptinemi í DTU í Kaupmannahöfn og vann svo á Kastrup-flugvelli um sumarið," segir hún og að með náminu hafi hún einnig starfað hjá Reykjavik.com og gert leikskrár fyrir Iðnó. Sigurlína breytti til innan verkfræðinnar og útskrifaðist í október 2002 með BS-gráðu í iðnaðarverkfræði
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir