Norðlensk ungmenni í Evrópusamstarfi
Kaupa Í körfu
TÍU ungmenni frá félagsmiðstöðvunum Gimli í Dalvíkurbyggð og Órion í Húnaþingi vestra taka þátt í verkefni í Danmörku, dagana 18. til 29. júlí í sumar á vegum Youth for Europe. Þangað koma einnig þátttakendur frá Englandi, Spáni, Ítalíu, Noregi ásamt gestgjöfunum, Dönum. Alls verða því sextíu ungmenni frá sex löndum við leik og störf í Danmörku þessa daga. Aðalþema verkefnisins er þátttaka ungs fólks í félagsstörfum. Youth for Europe áætlunin hefur þann aðaltilgang að efla samevrópska vitund ungs fólks í löndum Evrópusambandsins. Sem aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu geta Íslendingar tekið þátt í verkefnum af þessum toga. MYNDATEXTI. Íslenski hópurinn býr sig undir dvöl á erlendri grund. Frá vinstri standa Gunni fararstjóri, Björk, Eyjólfur, Telma, Hrund, Helga, Sigurður, Íris, Gunnar, Sonja og Bjarni fararstjóri. Á myndina vantar Andra.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir