Isuzu pallbíll

Árni Torfason

Isuzu pallbíll

Kaupa Í körfu

BÍLHEIMAR hafa fengið fyrstu bílana í endurnýjaðri pallbílalínu Isuzu, Isuzu D-Max. Þetta er laglega útlítandi pallbíll sem vekur talsverða athygli á götunum fyrir skarpleita og sterklega útlitshönnun. Krómað grill og hliðarspeglar ásamt hástæðu bremsuljósi ofan við afturgluggann setja einkar smekklegan svip á ytra útlit bílsins. Sumum finnst framsvipurinn helst minna á Toyota Land Cruiser 90. MYNDATEXTI: Isuzu-pallbíll hjá Bílheimum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar