Cannes 2004

HALLDOR KOLBEINS

Cannes 2004

Kaupa Í körfu

Himnaríki. Fyrir mér er það eins og að vera kominn til himna að koma til Cannes. Þannig hlýtur öllum sönnum kvikmyndaunnendum að líða. Hér fær maður líka að kynnast kvikmyndalistinni í sinni fegurstu mynd, sem einu öflugasta sameiningarafli sem upp hefur verið fundið, í félagi við aðra álíka ástríðufulla kvikmyndaunnendur, kinn við kinn. Svo mælti formaður dómnefndar í ár, Quentin Tarantino. Og meinti greinilega. Ekkert að setja sig í stellingar, ekkert að sleikja upp hátíðarstjórnendur sem verið hafa svo góðir við hann í gegnum tíðina, sýndu fyrstu myndina hans Reservoir Dogs, veittu annarri, Pulp Fiction, gullpálmann og hafa nú gert hann að formanni dómnefndar; eftirsóttur heiður sem fátt jafnast á við í heimi kvikmyndanna. MYNDATEXTI: Franska leikkonan Emmanuelle Béart

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar