Hraunsrétt

Atli Vigfússon

Hraunsrétt

Kaupa Í körfu

Réttað var í Hraunsrétt í Aðaldal á mánudagsmorguninn eða degi seinna en áætlað hafði verið þar sem veður hamlaði smölun í afréttinni fyrir helgina. Á undanförnum árum hefur fé fækkað mikið í réttinni en eigi að síður er alltaf beðið eftir Hraunsréttardeginum með eftirvæntingu. Nokkrar deilur hafa verið um réttina, en fjáreigendur í Aðaldal hafa samþykkt í atkvæðagreiðslu að byggja nýja rétt og leggja þar með Hraunsrétt niður. MYNDATEXTI. Fjallskilastjóri Aðaldæla, Indriði Ketilsson á Ytra-Fjalli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar