Konunglegi danski ballettinn

Jón Svavarsson

Konunglegi danski ballettinn

Kaupa Í körfu

Það var hjartnæm stund þegar ballerínan Silja Schandorff úr konunglega danska ballettinum hitti íslenska ættingja sína í fyrsta skipti. Fundum þeirra bar saman eftir sýningu dansflokksins í Þjóðleikhúsinu þann 2. júní. Móðuramma Silju, Rósa Sveinsdóttir, var íslensk en flutti til Danmerkur þegar hún var átján ára. Rósa hafði eftir það lítið sambandi við heimahagana og því hafa fjölskyldutengslin aldrei verið sterk milli afkomenda hennar og fjölskyldunnar hér heima. Í samtali við blaðamann sagðist Silja hafa grafið upp nafn eins ættingja sinna þegar hún frétti af ferð dansflokksins til Íslands. "Ég vissi ekkert um ættingja mína nema bara að ég ætti ættir að rekja hingað. Amma mín dó þegar ég var mjög lítil og því heyrði ég aldrei neitt um Ísland," sagði ballerínan sem þótti yndislegt að hitta íslenska ættingja sína í fyrsta skiptið. MYNDATEXTI: DANSMÆRIN með frænkum sínum eftir sýninguna, frá vinstri: Hrönn Stefánsdóttir, Margrét Ragnarsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Ingunn Stefánsdóttir, Helga Ragnarsdóttir, Hólmfríður Sigurðardóttir, Silja Schandorff og Kristín Stefánsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar