Bæjarskemmtun Grundfirðinga
Kaupa Í körfu
"Sveitt og svöl í Grundó" Grundarfjörður | Bæjarskemmtun Grundfirðinga fór fram um helgina og þótti takast vel. Að sögn Hrafnhildar Jónu Jónasdóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, settu hverfasamkomurnar og skrúðgöngur hverfanna skemmtilegan svip á hátíðina að þessu sinni. Grundarfjarðarbæ var skipt í fjögur hverfi sem hvert hafði sinn lit, gulan, rauðan, grænan og bláan. Strax á fimmtudagskvöldi mátti sjá íbúa bæjarins þyrpast út til að skreyta umhverfi sitt í réttum lit. Á laugardagskvöld kl. 18 var síðan sameiginleg grillveisla á grænum svæðum í hverju hverfi fyrir sig en síðan var gengið fylktu liði frá hverjum stað niður á hafnarsvæðið þar sem hvert hverfi flutti sitt skemmtiatriði. Að þeim loknum hófst bryggjuball. MYNDATEXTI: Blámenn: Íbúar á bláa svæðinu æfðu sig vel fyrir skrúðgönguna.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir