Kvikmyndun Bjólfskviðu undirbúin
Kaupa Í körfu
Kvikmynd eftir Bjólfskviðu verður stærsta verkefni í íslenskri kvikmyndasögu. Sturla Gunnarsson, leikstjóri og framleiðandi, leiddi Eyrúnu Magnúsdóttur blaðamann og Jónas Erlendsson ljósmyndara um tökustaði og greindi frá því að sá Bjólfur sem birtist í myndinni væri engin venjuleg hetja og ófreskjan Grendel ekkert venjulegt illmenni. Rétt austan við Vík í Mýrdal er verið að slá upp þrjú hundruð fermetra höll sem í senn verður samkomusalur og íverustaður danska kóngafólksins. Í kringum höllina eiga að standa lágreist hús fólksins í konungdæminu. Á sömu slóðum er fjöldinn allur af hellum og til stendur að gera nokkra þeirra að híbýlum trölla, norna og annarra ókinda. Þetta ævintýraland er að sjálfsögðu byggt í ákveðnum tilgangi. Í lok mánaðarins hefjast tökur á kvikmynd, gerðri eftir fornenska kvæðinu Bjólfskviðu. Myndin verður öll tekin upp á Íslandi og verður stærsta kvikmynd sem Íslendingar hafa tekið þátt í að gera. MYNDATEXTI: Vel fór á með Sturlu Gunnarssyni, leikstjóra og einum af framleiðendum Bjólfskviðu, og Ingvari E. Sigurðssyni, sem leikur hinn tröllslega Grendel, á tökustað myndarinnar austan við Vík í Mýrdal fyrr í vikunni.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir