Tökur á A Little Trip to Heaven
Kaupa Í körfu
Tökur standa yfir á bandarísku kvikmyndinni A Little Trip to Heaven í leikstjórn Baltasars Kormáks. Inga Rún Sigurðardóttir blaðamaður og Þorkell Þorkelsson ljósmyndari heimsóttu tökustað í Austur-Landeyjum og fylgdust með því skemmtilega lífi sem á sér stað á settinu. Staðurinn er landnámsbærinn Steinmóðarbær í Austur-Landeyjum en gæti verið hvar sem er á sléttum miðvesturríkja Bandaríkjanna. Bílhræ af amerískum köggum eru hvarvetna, húsið sem áður var íslenskt steinhús hefur verið klætt með tré að utan og fengið nýja þakklæðningu. Málningin er flögnuð og lítur húsið hrörlega út. Gömul steinútihús hafa verið máluð og geyma nú bandarískan pallbíll. Flugnanetsdyr eru fyrir aðaldyrunum í húsið og dós af Budweiser liggur kramin við þröskuldinn. Tilviljun ræður örugglega engu um tilvist hennar þar því hugað er að öllum smáatriðum. MYNDATEXTI: Ameríka í Austur-Landeyjum. Búið er að klæða húsið og planta amerískum köggum fyrir utan húsið til að láta umhverfið líkjast vesturheimi.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir