Leifur Halldórsson í Klumbu

Leifur Halldórsson í Klumbu

Kaupa Í körfu

Leifur Halldórsson, sem á og rekur Klumbu ehf. ásamt fjölskyldu sinni, segir að starfsfólk fyrirtækisins verði aðstoðað við að finna vinnu en ef það takist ekki verði það áfram á launaskrá fyrirtækisins. Unnið sé að því að endurreisa starfsemi Klumbu í Ólafsvík. Fiskvinnsluhús fyrirtækisins brann til kaldra kola aðfaranótt laugardags. Leifur segir alveg ljóst að fyrirtækið taki aftur til starfa í Ólafsvík. Enn sé þó ekki búið að ákveða með hvaða hætti það verði gert en þegar ákvörðun liggi fyrir þurfi framkvæmdir ekki að taka nema nokkra mánuði. Aðspurður segir hann ekki mögulegt að koma upp e.k. bráðabirgðaaðstöðu, of dýrt sé að koma fyrir búnaði í húsum sem svo þurfi að fjarlægja. MYNDATEXTI: Leifur Halldórsson í Klumbu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar