Kennaraverkfallið - Nemendur Ísaksskóla

Kennaraverkfallið - Nemendur Ísaksskóla

Kaupa Í körfu

Það var æði napur en bjartur haustdagur sem heilsaði börnum og fullorðnum í daglegri heilsubótargöngu þeirra niður Bólstaðarhlíðina í gær. Þetta er hinn laglegasti hópur og tilvalið að njóta útiverunnar þótt tilefnið komi ekki til af góðu, nefnilega verkfalli grunnskólakennara. Svo háttar til að hér er á ferðinni nemendahópur í Ísaksskóla sem fær enga íþróttakennslu í verkfallinu. Það eru því foreldrarnir sem skiptast á um að hafa ofan af fyrir ungviðinu í íþróttatímum, en íþróttakennarinn er í verkfalli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar