Sailesh , dávaldur

Sverrir Vilhelmsson

Sailesh , dávaldur

Kaupa Í körfu

Dávaldur | Sailesh skemmtir landanum DÁVALDURINN Sailesh segist hafa fengið frábærar viðtökur á Íslandi. Hann er búinn að taka upp sjónvarpsþátt fyrir Stöð 2 og hefur dáleitt menntaskóla- og háskólanema í fimm skólum frá því hann kom til landsins á þriðjudag. Hann hélt sýningu fyrir fullu húsi í Broadway á fimmtu- og föstudagskvöld og uppselt er á lokasýninguna í kvöld. "Það hefur allt gengið frábærlega hérna og það hefur verið tekið vel á móti mér. Viðbrögðin hafa verið ótrúleg," segir þessi hlédrægi og rólegi dávaldur. MYNDATEXTI: Sailesh hafði áhorfendur á valdi sér á sýningu er hann hélt fyrir Stöð 2, sem tók upp listir kappans og áhorfenda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar