Sviðahausar

Ragnar Axelsson

Sviðahausar

Kaupa Í körfu

Jóhannes Guðmundur Þorbergsson og Ólafur Skúli Björgvinsson, starfsmenn Kaupfélags V-Húnvetninga voru í óðaönn að svíða hausa í húsnæði sláturhússins, þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar þar að garði í gærmorgun. Þeir höfðu ekki töluna á hausunum á hreinu sem þeir myndu svíða en áætluðu að það gætu verið á níunda þúsundið. Ólafur Skúli leit upp frá dagsverkinu í smá stund á meðan Jóhannes mundaði græjurnar. Kvörtuðu þeir ekki undan hitanum við þessa iðju, þökk góðri loftræstingu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar