Rafmagnslaust

Rafmagnslaust

Kaupa Í körfu

BILUN í háspennustreng varð til þess að rafmagnslaust varð í Hlíðunum í Reykjavík í um klukkustund í gærkveldi. Fór rafmagn meðal annars af veitingahúsinu Perlunni og truflun varð á sjónvapsútsendingu vegna þess að endurvarpsmöstur við Veðurstofuna duttu út um tíma. Ekki var í gærkvöldi vitað hvað orsakaði bilunina í strengnum. Vegna rafmagnsleysis þurfti lögreglan að stjórna umferð við gatnamót Miklubrautar og Lönguhlíðar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar