Garðatorg Ráðhúsið í Garðabæ
Kaupa Í körfu
Fyrir um þrjátíu árum viðraði ég þá hugmynd í Lesbók, að í miðbæ Reykjavíkur og raunar í miðbæjum allra annarra bæja á landinu þyrfti að gera ráð fyrir yfirbyggðu torgi. Þessi hugmynd var þó engan veginn ný af nálinni þá og miklu lengra síðan byggt var með gleri yfir verzlunargötu suður í Mílanó. Þó að íslenzkt veðurfar hafi agnarögn skánað á síðustu þrem áratugunum er það æði oft nægilega úfið til þess að við sitjum ekki okkur til ánægju með kaffibollann úti á gangstétt. Enn sem fyrr er skjólmyndun forsenda fyrir blómlegu mannlífi á torgum. Menn hafa séð hvað torg í ítölskum bæjum eru lífleg, en ef við ætlum að skapa skilyrði fyrir eitthvað ámóta eru yfirbyggð torg - eða einstaka yfirbyggðar götur - grundvallarforsenda. Ástæða var til að verða bæði undrandi og glaður þegar Garðbæingar sýndu þá framsýni að byggja ásamt nýju ráðhúsi samstæðu húsa, sem mynda ákjósanlega veggi á alla kanta fyrir yfirbyggt torg. Ráðhúsið í Garðabæ þekkja flestir sem eitthvað eru á ferli; það er alvöru ráðhús með turni, prýðilegt verk Ingimundar Sveinssonar arkitekts MYNDATEXTI:Undir glerþaki á Ráðhústorginu í Garðabæ. Þó að þarna hafi eitt og eitt listaverk verið látið standa og pappírsnaut hengt upp í loft, eru stórfenglegir möguleikar þessa rýmis enn ónotaðir.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir