Tökur hefjast á Kallakaffi

Tökur hefjast á Kallakaffi

Kaupa Í körfu

ÆFINGAR eru hafnar á nýrri sjónvarpsþáttaröð í tólf þáttum sem frumsýnd verður í Ríkissjónvarpinu í febrúar komandi, ef að líkum lætur. Heita þættirnir Kallakaffi og munu fylgja línum "sitcom" þátta eins og Vinir og Staupasteinn. Leikstjóri er Hilmar Oddsson og handritshöfundur er Guðmundur Ólafsson. Búið er að ráða í helstu hlutverkin en með þau fara Valdimar Örn Flygenring, Rósa Guðný Þórsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Davíð Guðbrandsson, Ívar Örn Sverrisson og Laddi. MYNDATEXTI: Í Kallakaffi: Rósa Guðný Þórsdóttir, Valdimar Örn Flygenring, Ívar Örn Sverrisson, Davíð Guðbrandsson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Laddi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar