Snjókoma

Sverrir Vilhelmsson

Snjókoma

Kaupa Í körfu

SNJÓ kyngdi niður á höfuðborgarsvæðinu í gærdag og urðu verulegar tafir á umferð víða. Börnin fögnuðu snjónum og gerðu snjókarla og -kerlingar en ökumenn og aðrir vegfarendur voru ekki jafnhrifnir. Lögreglu var tilkynnt um rúmlega 40 árekstra í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Urðu talsverðar umferðartafir á Reykjanesbraut, Miklubraut og víðar þegar snjónum kyngdi niður síðdegis. Ekki urðu slys á fólki í árekstrunum og voru þeir flestir minni háttar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar