Guðsteinn Einarsson

Ásdís Haraldsdóttir

Guðsteinn Einarsson

Kaupa Í körfu

Kaupfélag Borgfirðinga 100 ára í dag Komin aftur til upphafsins Kaupfélag Borgfirðinga er með stærstu vinnuveitendum í Borgarnesi. Þar starfa að vetri til um 120 manns í 70 störfum en fjölgar upp í um 160 á sumrin. Enda er mest að gera í Kaupfélaginu á sumrin þegar sumarbústaðafólkið og ferðamennirnir fara á kreik. Guðsteinn Einarsson er kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga og hefur gegnt því starfi frá árinu 1998. Reyndar er hann titlaður framkvæmdastjóri. Hann segir að þegar mest sé að gera á sumrin og íbúafjöldi tvöfaldast í héraðinu með sumarbústaðafólkinu anni Hyrnan vart eftirspurn. Eins og flestum er kunnugt rekur Kaupfélagið þar bensín- og olíusölu, sjoppu, verslun og veitingastað en leigir húsnæðið af Olíufélaginu. MYNDATEXTI: Bjartsýnn og raunsær. Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar