Þjóðminjasafn

Gísli Sigurðsson

Þjóðminjasafn

Kaupa Í körfu

Sú skoðun heyrðist að bezt hefði verið að brjóta Þjóðminjasafnið niður og byggja nýtt, segir Gísli Sigurðsson. Þá er slegið striki yfir, eins og það skipti ekki máli, að húsið var morgungjöf þjóðarinnar til sjálfrar sín við lýðveldistökuna 1944. Eftir nokkurra ára hlé vegna byggingarframkvæmda og flutnings í uppgert hús er Þjóðminjasafnið á nýjan leik orðið einn af þeim stöðum í Reykjavíkurborg þar sem skemmtilegt er að koma og auðvelt að gleyma sér yfir gersemum liðinna alda. MYNDATEXTI: Haglega smíðað líkan á Þjóðminjasafni, um 3 m langt, af skútunni Hafrúnu, sem lengst af var gerð út frá Ísafirði en endaði í Stykkishólmi. Hún var smíðuð í Danmörku 1874-75 og var hún 40 brúttólestir. Veiðar á þilskipum hófust hér á landi um aldamótin 1900 og þá var stundum legið úti vikum saman. Þessi þilskip voru notuð fram til 1920.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar