Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar

Kaupa Í körfu

Mikil uppbygging er fyrirhuguð hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar fram til ársins 2007 UPPSVEIFLAN í golfíþróttinni virðist engan endi ætla að taka, og áformar Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) nú að stækka völlinn út 18 holum í 27, og er vinna langt komin við uppbyggingu nýju brautanna. Reiknað er með því að þær verði tilbúnar til notkunar síðla sumars 2006 eða vorið 2007. Jóhann Gunnar Stefánsson, formaður GKG, segir að meðlimir í klúbbnum séu í dag um 1.300, sem sé hámarkið á meðan leikið er á 18 holum. Þegar 9 holur hafi bæst við geti fjöldi meðlima farið í um 1.500, og enginn skortur á eftirspurn. MYNDATEXTI: Uppsveifla í golfinu Jóhann segir að meðlimum í GKG gæti fjölgað í 1.500 þegar nýju holurnar verða komnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar