Grásleppuvertíð hafin

Gunnlaugur Árnason

Grásleppuvertíð hafin

Kaupa Í körfu

Hún byrjar seint þetta árið grásleppuvertíðin í innanverðum Breiðafirði eða 10 dögum seinna en undanfarin ár. Veiðar voru leyfðar 20. maí. Bátar voru komnir á miðin á tilsettum tíma, en ekki tókst öllum bátum að klára að leggja netin vegna norðaustan storms á Breiðafirði síðustu daga. MYNDATEXTI: Vertíðin hafin Grásleppukarlarnir Kristján Berntsson, Björgvin Guðmundsson, Sigurður Þórarinsson og Kristinn Pálsson bera saman bækur sínar eftir að hafa lagt netin í fyrsta sinn á vertíðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar