Heimili Hrafns Gunnlaugssonar í Laugarnesinu
Kaupa Í körfu
Af öllum furðulegum og frumlegum húsum á Íslandi er húsið að Laugarnestanga 65 án efa í hópi hinna sérkennilegustu. Eigandinn, Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður, er enda þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir og síst verður um hann sagt að hann bindi bagga sína sömu hnútum og samferðarmennirnir. Húsið og innbú þess ber vott um afar sérstæðan smekk, svo ekki sé meira sagt. Hér ægir saman ólíklegustu hlutum, í bland við kostulega innréttingu og óvenjulegt hugmyndaflug, en ef til vill má lesa út úr þessu öllu ákveðna sérvisku eigandans. Víst er að ekki er öllum gefið að láta sér detta svona nokkuð í hug og sjálfsagt eru þeir ekki margir sem geta búið í húsi sem þessu. MYNDATEXTI: Við suðurgafl hússins er hringlaga sólskáli
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir