Nemendastyrkir

Kristján Kristjánsson

Nemendastyrkir

Kaupa Í körfu

UNDANFARIN ár hefur Landsbanki Íslands veitt tveimur nemendum Háskólans á Akureyri styrk til framhaldsnáms í greinum sem tengjast sjávarútvegi eða fjármálastarfsemi eða til rannsóknarverkefnis á sömu sviðum. Hvor styrkur er 500.000 krónur og eru þeir veittir til nemenda sem brautskráðir eru frá auðlindadeild og viðskiptadeild. MYNDATEXTI: Styrkir Helgi Teitur Helgason, útibússtjóri Landsbankans, t.v., María Árnadóttir, sem veitti styrk Ríkarðs sonar síns viðtöku, Dagný Björk Reynisdóttir og Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar