Páll Tryggvason

Kristján Kristjánsson

Páll Tryggvason

Kaupa Í körfu

SJÁLFSTÆTT starfandi barna- og unglingageðlæknar höfðu lokið um 85% einingarkvóta síns að loknum fyrstu 9 mánuðum ársins, í lok september, og stefnir í að þeir fari um 10% fram úr kvótanum á yfirstandandi ári. Eftir er að taka saman tölur fyrir keypta þjónustu í október og þá eru læknarnir bókaðir nú í nóvember. "Það bendir allt til þess að við verðum neydd til að ljúka okkar vinnu í lok þessa mánaðar," sagði Páll Tryggvason barna- og unglingageðlæknir á Akureyri og yfirlæknir barna- og unglingageðlækninga við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. MYNDATEXTI: Páll Tryggvason, yfirlæknir barna- og unglingageðlækninga við FSA.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar