Ómar Ragnarsson á Kringilsárrana
Kaupa Í körfu
Næstu vikurnar eru síðustu forvöð fyrir landann að sjá svæðið við Kringilsárrana sem hverfa mun undir Hálslón, en líkt og margoft hefur komið fram verður byrjað að safna vatni í lónið í september nk. Ómar Ragnarsson fréttamaður mun á næstunni verða landsmönnum innan handar við að sjá og kynna sér svæðið hvort heldur er í lofti eða á láði. Þannig getur fólk t.d. keyrt að flugvellinum við Kárahnjúkaveginn eða flugvellinum við Brúarjökul og fengið þar að hoppa upp í hina margfrægu flugvél Ómars TF-FRÚ og flogið með honum yfir svæðið, skoðað stífluna úr lofti, áhrifasvæði Hálslóns, Kringilsárrana, nú eða fossaröðina í Jökulsá í Fljótsdal sem mun hverfa, allt eftir því hvað fólk langar helst að sjá og upplifa. MYNDATEXTI: Ómar hefur komið verðlausum bíldruslum fyrir á flugvöllum víðs vegar um Kárahnjúkasvæðið, sem hann notar til að skutla fólki í skoðunarferðir, enda vill hann aðstoða sem flesta við að sjá svæðið með eigin augum.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir