Fiskidagurinn mikli á Dalvík
Kaupa Í körfu
UM 40 þúsund manns komu saman á Dalvík um helgina, á Fiskideginum mikla sem þar var haldinn í sjötta sinn. Aldrei áður hafa svo margir sótt Dalvíkinga heim á Fiskidegi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var heiðursgestur dagsins að þessu sinni. Hann lauk miklu lofsorði á Dalvíkinga í ávarpi sínu, gestrisni þeirra væri einstök, en fjölmargir bæjarbúar opnuðu heimili sín og buðu gestum upp á fiskisúpu á föstudagskvöld. Það hefði verið þeim hjónum ógleymanlegt, að fá tækifæri til að líta inn á heimili og njóta gestrisni heimamanna. Svo hefði tekið við heilmikil fiskiveisla, tugir tonna af fiski voru á boðstólum fyrir gesti og þetta bæri vott um mikinn stórhug heimamanna. MYNDATEXTI: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff, eiginkona hans, voru meðal þeirra sem sóttu Fiskidaginn mikla á Dalvík.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir