Varnarmálin

Varnarmálin

Kaupa Í körfu

Varnir Íslands verða tryggðar með svokölluðum hreyfanlegum herstyrk, sem kæmi í stað fastrar viðveru Bandaríkjahers hér á landi, samkvæmt varnaráætlun fyrir Ísland, sem bandarísk og íslensk stjórnvöld hafa náð samkomulagi um. Forystumenn stjórnarflokkanna kynntu samkomulagið á blaðamannafundi í gær, þeir Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra og Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og starfandi utanríkisráðherra. MYNDATEXTI: Samkomulag - Forystumenn stjórnarflokkanna, Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson, kynntu niðurstöðu viðræðna við Bandaríkin um varnarmál á fundi í Þjóðmenningarhúsi í gær. Í forgrunni er Albert Jónsson, formaður samninganefndarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar