Íslenskir ráðherrar í Washington
Kaupa Í körfu
GEIR H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra undirrituðu í gær samkomulag Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál ásamt Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, við hátíðlega athöfn í utanríkisráðuneytinu í Washington. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var viðstaddur. Þá hittu íslensku ráðherrarnir þrír varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, í Pentagon. Áður en samkomulagið var undirritað sagði Rice að með því væru þjóðirnar að aðlagast nýjum veruleika með breytingu á sambandi sínu, "öryggissamkomulagi sem hefur verið okkur mjög mikilvægt". Hún sagði breytingarnar ekki tákna skerðingu á öryggi Íslands. MYNDATEXTI: Samkomulag - Valgerður Sverrisdóttir, Geir Haarde, Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Björn Bjarnason í Washington í gær.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir