Bryggjukantur kemur í ljós

Ragnar Axelsson

Bryggjukantur kemur í ljós

Kaupa Í körfu

FORNLEIFAFRÆÐINGAR frá Fornleifastofnun Íslands hafa eftirlit með fornleifauppgreftri norðan Hafnarstrætis og austan Tryggvagötu við Reykjavíkurhöfn. Í gær var verið að vinna við gamlar grjóthleðslur sem komið hafa í ljós bak við hús Rammagerðarinnar og önnur hús norðan Hafnarstrætis. Fyrirtækið Urð og grjót ehf. er nú að breyta lögnum sem lenda inni í byggingarreitum fyrirhugaðs tónlistarhúss, hótels og banka við Reykjavíkurhöfn. Garðar Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Urðar og grjóts ehf., sagði að þessi verkþáttur væri upp á um 200 milljónir króna og lagnirnar sem þyrfti að færa og leggja mældust samtals í kílómetrum. MYNDATEXTI: Uppgröftur - Fornleifafræðingar voru að rannsaka grjóthleðslurnar við Tryggvagötu í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar