Pálína Vagnsdóttir

Gunnar Hallsson

Pálína Vagnsdóttir

Kaupa Í körfu

MIKILL fögnuður er meðal íbúa í Bolungarvík í kjölfar yfirlýsingar samgönguráðherra sl. mánudag um gerð jarðganga frá Ósi í Bolungarvík að Skarfaskeri í Hnífsdal. Í gær var fánum flaggað við nokkur íbúðarhús í bænum og við ráðhúsið. Flaggað í hálfa stöng á Ósi Ekki ríkti þó ánægja á öllum bæjum því flaggað var í hálfa stöng í gær á bænum Ósi í Bolungarvík en gangamunni fyrirhugaðra jarðganga Bolungarvíkurmegin og aðliggjandi vegur verður á eignarlandi jarðarinnar. MYNDATEXTI Fagnar Pálína Vagnsdóttir sem hefur beitt sér í baráttunni fyrir öruggum samgöngum til Bolungarvíkur var ein þeirra sem drógu fána að húni í gær til að fagna ákvörðun samgönguráðherra um gerð jarðganga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar