Ólafur Þórðarson þjálfari ÍA

Villa við að sækja mynd

Ólafur Þórðarson þjálfari ÍA

Kaupa Í körfu

SKAGAMAÐURINN Ólafur Þórðarson er án efa eitt mesta hörkutól sem reimað hefur á sig takkaskó hér á landi. Á löngum ferli minnist ég þess varla að hann hafi lotið í gras eftir návígi við nokkurn mann, innlendan sem erlendan - þar til í síðustu viku. Eftir að Ólafur lagði skóna á hilluna hefur hann fengist við þjálfun og það var einmitt erindi hans við skjásparkendurna í KF Nörd í samnefndum þætti á Sýn. Nördin stefndu skónum á Litla-Hraun til að etja kappi við vistmenn og Loga Ólafssyni, yfirþjálfara, þótti rétt að kveðja Ólaf á vettvang til að herða upp í hópnum. MYNDATEXTI: Steinlá - Ólafur Þórðarson komst í hann krappan á æfingu hjá KF Nörd.

Frekari upplýsingar

Karfa engin mynd

Þú ert ekki með neina mynd í körfunni. Smelltu á körfuna til að kaupa myndir.

Ljósmyndarar

Teiknarar