Hafnardagar
Kaupa Í körfu
Fjölbreytni mannlífsins kemur vel fram á ljósmyndum fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni sem birtast daglega í blaðinu. Þær eru eins konar spegill þjóðarinnar. Lokið er samkeppni um bestu ljósmyndir fréttaritara frá árunum 2005 og 2006 sem Morgunblaðið og Okkar menn, félag fréttaritaranna, efndu til í byrjun þessa árs. Mörg hundruð myndir bárust dómnefnd. Úrslit voru kynnt og verðlaun afhent á aðalfundi Okkar manna sem haldinn var í Morgunblaðshúsinu í Reykjavík í gær. Dómnefnd valdi "Skýjahöll", mynd Jónasar Erlendssonar, fréttaritara Morgunblaðsins í Mýrdal, sem mynd keppninnar. Einnig voru veitt verðlaun í átta keppnisflokkum. Verðlaunamyndirnar og valdar myndir úr keppninni hafa verið settar upp á sýningu í verslunarmiðstöðinni Smáralind, neðri hæð. Myndirnar verða þar til 4. apríl næstkomandi og verða síðan settar upp á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Mannamyndir: Viðurkenning HAFNARDAGAR Íbúar og gestir bæjarins gleðjast saman á Hafnardögum í Þorlákshöfn, eins og mynd Jóns H. Sigurmundssonar ber með sér. Á hátíðinni sumarið 2006 falaðist Elín Ósk Jónsdóttir eftir kossi frá systurdóttur sinni, Kolfinnu Kötlu Jóhannesdóttur.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir