Alcoa

Steinunn Ásmundsdóttir

Alcoa

Kaupa Í körfu

Verktakafyrirtækið Suðurverk hf. í Hafnarfirði festi nýlega kaup á afar öflugum og vel búnum Volvo G970 veghefli hjá Brimborg. Veghefillinn er meðal annars búinn HTE 1160 gírskiptingu en á henni eru 11 gírar til aksturs fram á við og 6 gírar til aksturs aftur á bak. Jafnframt er gírskiptingin búin svokölluðum Auto Shift búnaði. Hefillinn er framleiddur af Volvo Construction Equipment en þegar hús á slíka hefla eru annars vegar býður Volvo CE upp á tvo möguleika og er hefill Suðurverks búinn lægra húsinu. MYNDATEXTI: Reyðarfjörður- Suðurverk hefur m.a. séð um jarðvinnu á Reyðarfirði og bíða fyrstu verkefni hefilsins þar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar