Álverið á Reyðarfirði
Kaupa Í körfu
Almenn ánægja ríkir á Reyðarfirði með nýtt álver og mikil uppbygging á sér stað í bænum. Það er hugur í íbúunum, sem gefa lítið fyrir nýafstaðna atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði; þeir eru komnir með sitt álver. Gestir geta ekki komist inn á svæði Fjarðaáls nema með sérstöku leyfi. Í varðhliði er tekið á móti þeim og þeim gert að klæða sig í skó með stáltá, skrýðast endurskinsvesti, setja upp öryggisgleraugu og skýrt er tekið fram að derið þurfi að snúa fram á hjálminum. Svo verða þeir að horfa á stutt myndband, þar sem hamrað er á nauðsyn þess að fara varlega á þessu risastóra iðnaðarsvæði. MYNDATEXTI: Byrjunin - Álframleiðsla í kerskálunum er að hefjast og er stefnt að því að ná fullum afköstum í október, 346 þúsund tonnum, með 575 megavöttum frá Kárahnjúkum. Á sama tíma og framleitt verður í öðrum enda kerskálans er enn unnið að byggingarframkvæmdum í hinum.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir