Glitnir, Kirkjusandi

Brynjar Gauti

Glitnir, Kirkjusandi

Kaupa Í körfu

HAGNAÐUR Glitnis á þriðja ársfjórðungi nam 8,8 milljörðum króna en á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 4,8 milljörðum króna og er aukningin milli ára því um 83%. Hagnaðurinn er yfir væntingum en greiningardeild Landsbankans hafði spáð 7,7 milljarða króna hagnaði á fjórðungnum og greiningardeild Kaupþings banka hafði spáð 8,4 milljörðum í hagnað á tímabilinu. Á öðrum ársfjórðungi þessa árs nam hagnaður Glitnis 11 milljörðum króna. MYNDATEXTI: Uppgjör - Hagnaður Glitnis fyrstu níu mánuði ársins nam 28,9 milljörðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar