Esjuganga

Brynjar Gauti

Esjuganga

Kaupa Í körfu

MARGIR lögðu leið sína á Esjuna í gær en hópurinn 5 tindar hvatti til að slegið yrði Íslandsmet í fjölda göngumanna á Esjuna. Þegar haft var samband við meðlimi hópsins rétt fyrir hádegi í gær höfðu rúmlega 200 manns hafið göngu og voru skipuleggjendur bjartsýnir á að 1.000 manna markinu yrði náð fyrir klukkan átta á laugardagskvöld. Ekkert formlegt Íslandsmet er til skráð um fjölda göngufólks á Esjuna en markmið hópsins var að setja markið það hátt að erfitt yrði fyrir göngufólk framtíðarinnar að slá metið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar