Veiðimyndir

Einar Falur Ingólfsson

Veiðimyndir

Kaupa Í körfu

FYRSTA laxi sumarsins var landað við veiðistaðinn Brotið í Norðurá 21 mínútu yfir sjö í gærmorgun. Samkvæmt fjögurra áratuga hefð hóf formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, Bjarni Júlíusson, veiðarnar fyrstur á mínútunni sjö. Tíu mínútum síðar tók laxinn, silfurbjört níu punda 74 cm löng hrygna, brúna og svarta túpuflugu; Black Eyed Prawn. Laxinn var ekki lúsugur þannig að hann hefur verið einhverja daga í ánni. MYNDATEXTI: Mæling - Guðmundur Stefán Maríasson og Gylfi Gautur Pétursson, stjórnarmenn í SVFR, hafa hraðar hendur við að mæla lengdina á laxinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar