Egill Helgason

Ragnar Axelsson

Egill Helgason

Kaupa Í körfu

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason er byrjaður að blogga á Moggablogginu Blog.is. Eins og kunnugt er hefur staðið nokkur styr um starfslok Egils á Stöð 2 og í kjölfarið var lokað fyrir aðgang hans að bloggi sem hann hélt úti á Vísi.is. Hann ákvað því að skipta yfir á Blog.is. "Ég er nú ekki búinn að skrifa neitt nema smáprufu inn á þetta," sagði Egill í gærkvöldi. "En ég mun setja eitthvað inn ef andinn býður og það verður ábyggilega ekki neitt um einhver leiðindadeilumál sem hafa verið að dynja á mér," sagði Egill sem er á leið í frí til Englands, Þýskalands og Grikklands og mun því lítið blogga á næstu dögum. silfrid.blog.is MYNDATEXTI: Egill Helgason

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar