Dregg

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Dregg

Kaupa Í körfu

FLUTNINGASKIPIÐ, sem fyrirtækið Dregg á Akureyri festi kaup á nýverið, lagði að bryggju í höfuðstað Norðurlands í fyrsta skipti í gærmorgun. Því hefur verið gefið nafnið Axel og síðdegis blessaði séra Arnaldur Bárðarson skipið að viðstöddu nokkru fjölmenni. Skipið, sem áður hét Greenland Saga, er 3.200 brúttótonn og var keypt af dönsku fyrirtæki. Það verður í siglingum á milli Íslands og hafna í Danmörku og Lettlandi. Axel heldur í fyrstu ferðina frá Akureyri strax í dag. Skipstjóri Axels er Eisti, Pyotr Priladyshev, og áhöfnin reyndar öll eistnesk. MYNDATEXTI Bjarni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Dregg Shipping, og Ari Jónsson, eigandi fyrirtækisins. Þarna sést fram eftir dekkinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar