Í sundi

Sverrir Vilhelmsson

Í sundi

Kaupa Í körfu

LANDSMÖNNUM bauðst að skella sér í sund á kostnað Símans í gær, laugardag. Margs konar uppákomur voru í laugunum og nýttu því margir sér tækifærið. Þótt sólin hefði mátt skína skærar víða um land virtust allir vel við una. Þessi litla hnáta hafði í nógu að snúast í Árbæjarlauginni og einbeitti sér sem mest hún mátti í einkaflugtímanum. Hún tók nokkrar snertilendingar áður en flugferðinni lauk, en það var þó mál manna að aðstoðarflugmaðurinn stæði sig ekki síður vel.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar