Buslað á Langasandi

Buslað á Langasandi

Kaupa Í körfu

Engum blöðum er um það að fletta að Íslendingar gleðjast þegar sólin lætur sjá sig. Konur, börn og ferfætlingar flykkjast á þá staði sem hægt er að tylla tá, hvort sem er á kaffihúsin um borg og bæ eða græna grasbletti hvar sem þeir finnast. Í Nauthólsvík var fjöldi fólks í baðstrandarstemningu, sumir busluðu í vatninu en aðrir lásu í bók. Í miðborg Reykjavíkur var þétt setinn bekkurinn á kaffihúsunum og á Austurvelli dvaldi fólk við ýmsa iðju. MYNDATEXTI: Sólarströnd? Já, svo sannarlega. Þó ekki á erlendum slóðum heldur á sjálfum Langasandi á Akranesi. Þær fóru þó varlega dömurnar nema sú síðasta sem tiplar eftir sandinum í sundfötunum og ákveðin í fasi stefnir á mjúkar og lokkandi öldurnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar