Útskriftarnemendur Menntaskólans á Ísafirði

Útskriftarnemendur Menntaskólans á Ísafirði

Kaupa Í körfu

MENNTASKÓLANUM á Ísafirði var slitið í 37. sinn á laugardaginn 26. maí sl. Fjörutíu nemendur voru útskrifaðir; 28 stúdentar, tveir sjúkraliðar, einn úr rennismíði, tveir af öðru stigi vélstjórnar og sjö úr grunnnámi málmiðngreina. Hæstu einkunn hlaut Edith Guðmundsdóttir Hansen, stúdent af náttúrufræðibraut. Hún hlaut fyrstu ágætiseinkunn, 9.41. Hlaut hún verðlaun sem Aldarafmælissjóður Ísafjarðarbæjar gefur þeim nemanda sem hlýtur hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi. Einnig hlaut Edith verðlaun kanadíska sendiráðsins fyrir framúrskarandi árangur í frönsku og ensku, peningaverðlaun, sem Ragnheiður Hákonardóttir, Guðbjartur Ásgeirsson og fjölskylda gefa til minningar um Guðbjart Guðbjartsson, fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum og verðlaun Stærðfræðifélagsins fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði. MYNDATEXTI Edith Guðmundsdóttir Hansen var hæst með einkunnina 9,41.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar