Feðgar

Hafþór Hreiðarsson

Feðgar

Kaupa Í körfu

Húsavík | Fyrir skömmu fóru rúmlega þrjátíu börn og unglingar ríðandi á hestum frá Saltvík út á Húsavík. Þessir ungu knapar hafa verið á reiðnámskeiðum í hestamiðstöðinni í Saltvík í vetur. Ferðin var lokapunkturinn á námskeiðunum og voru þeir þarna á ferð með leiðbeinendum sínum, auk þess sem einhverjir foreldrar voru með í för. Meðal knapanna var Ófeigur Óskar Stefánsson sem reið þessa leið með föður sínum, Stefáni Haraldssyni. MYNDATEXTI Útreiðar Feðgarnir Stefán Haraldsson og Ófeigur Óskar Stefánsson á leið í firmakeppnina..

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar