Barnaspítali Hringsins 50 ára afmæli

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Barnaspítali Hringsins 50 ára afmæli

Kaupa Í körfu

SAFNAST þegar saman kemur. Kvenfélagið Hringurinn gaf 50 milljónir króna til Barnaspítala Hringsins á 50 ára afmæli hans í gær. Ragna Eysteinsdóttir, formaður Hringsins, segir milljónanna 50 hafa verið aflað með hefðbundnum aðferðum Hringskvenna: Basar, jólakortasölu, söfnunarbaukum og gjöfum frá almenningi. Hringurinn eyrnamerkir féð ekki til ákveðinna verkefna, að sögn Rögnu. "Fagfólkið veit best hvar þörfin er mest," segir hún. MYNDATEXTI: Bakhjarlar - Konurnar í Hringnum útbýttu pylsum í óðaönn, dýrindiskökusneiðum og öðru góðgæti. Gleðin geislaði af þeim innan um börnin, sem mættu í hundraðatali ásamt foreldrum sínum og vinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar