Borgarstjórinn veiðir

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Borgarstjórinn veiðir

Kaupa Í körfu

VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri uppskar laun erfiðisins þegar hann landaði fjögurra punda laxi í Elliðaánum í gær. Klukkan sjö fylgdist hópur fólks með honum renna í Sjávarfossinn, hefðbundinn veiðistað borgarstjóranna. Lítið gerðist í fyrstu og tíndust áhorfendur í burtu. Þegar einn viðstaddra spurði Vilhjálm upp úr klukkan níu hvort hann yrði ekki að gefast upp, svaraði hann rólega: "Þeir fiska sem róa," fékk nýjan orm á öngulinn og renndi að nýju.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar